Fagna niðurstöðu dóms í DC++ máli
Héraðsdómur Reykjavíkur mbl.is/Þorkell
Rétthafar tónlistar og myndefnis lýsa yfir ánægju sinni með niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í dag þar sem fallist var á kröfu ákæruvaldsins og allir einstaklingar sem ákærðir voru, í hinu svo kallaða DC++ máli, sakfelldir fyrir margvísleg brot á höfundarétti.
Refsikrafa var staðfest og eru framgreind brot grundvöllur bótaskyldu vegna ólögmætra nota á höfundaréttavörðu efni. Allir ákærðu voru dæmdir til greiðslu sakarkostnaðar.
Ákærðu voru, eins og áður segir, sakfelldir fyrir að birta og gera eintök af forritum, kvikmyndum og tónlist á netinu þannig að aðrir gætu nálgast það efni án leyfis rétthafa. Ennfremur var einn ákærða dæmdur fyrir að setja upp og hýsa miðlægan nettengipunkt og hafa með því liðsinnt í verki og hvatt til þess að aðrir ákærðu birtu á netinu í heimildarleysi ólögmæt eintök varin höfundarétti. Þar með er hlutdeildarbrot hvað varðar höfundarétt staðfest, samkvæmt tilkynningu frá rétthöfum tónlistar og myndefnis.
Einnig var staðfest krafa rétthafa um upptöku tölvubúnaðar sem hinir ákærðu notuðu við skráarskiptin sín á milli.
„Dómur þessi verður ennfremur vonandi til þess að almenningur átti sig á því að það er ólögmæt að skiptast á kvikmyndum, tónlist og forritum á netinu án heimildar rétthafa. Málaferli af þessum toga eru ávallt neyðarbrauð þar sem þau eru bæði tímafrek og dýr fyrir alla sem í hlut eiga þ.e. rétthafa, lögregluyfirvöld, dómskerfið og brotaþola," samkvæmt tilkynningu.
Bloggað um fréttina
-
Púkinn Núna DC++, næst Istorrent -
Einar Þór Strand Hvað með gjaldið á geisladiskana. -
Tryggvi Thayer Rétthafar ættu að leita nýrra leiða -
Tryggvi Hjaltason Lýðræðislegt Bakslag! -
Stefán Friðrik Stefánsson Merkilegur sigur Smáís - áfall fyrir niðurhalarana -
Sigurður R. Guðmundsson Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur maður ekki mann?
Innlent »
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
- Bjóða brúðhjónunum til Íslands
- Um 65% með leka púða
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 4. mars 2008, Innlent Klófestir með hjálp tálbeitu
- Mánudagur, 3. mars 2008, Innlent Sakfelldir fyrir að vista höfundarvarið efni á nettengdum tölvum
- Miðvikudagur, 12. mars 2008, Innlent Krefjast skaðabóta frá Istorrent
- Mánudagur, 9. júní 2008, Innlent Engin refsing í líkamsárásarmáli
- Fimmtudagur, 3. maí 2007, Innlent Jón Ásgeir og Tryggvi sakfelldir vegna kreditreiknings frá Nordica
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin




































