Ráðinn framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs

Þórður H. Ólafsson.
Þórður H. Ólafsson.

Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur ákveðið að ráða Þórð H. Ólafsson í starf framkvæmdastjóra þjóðgarðsins.

Þórður lauk prófi í efna- og rekstrartæknifræði frá tækniháskólanum í Osló árið 1976. Að námi loknu starfaði hann hjá Landsvirkjun til ársins 1984, síðan sem framkvæmdastjóri, fyrst hjá Íslandslaxi hf. og svo Lindalaxi hf., á árunum 1984 til 1990.  Þórður vann sem ráðgjafi hjá Framkvæmdasjóði í tvö ár, þar til hann réðst til umhverfisráðuneytisins 1992, þar sem hann hefur starfað síðan, lengst af sem skrifstofustjóri fjármála og rekstrar. 

Frá byrjun árs 2004 þar til í september sl. gegndi hann stöðu sendifulltrúa umhverfisráðuneytisins hjá sendinefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu í Brussel.  Frá þeim tíma hefur hann verið í leyfi frá störfum í ráðuneytinu, en gegnt tímabundið starfi starfsmanns stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert