Árekstur í Reykjavík

Tveir bílar, jeppi og fólksbifreið, rákust saman á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Bústaðavegar í Reykjavík um kl. sjö í morgun. Þurfti að beita klippum til að losa fólk úr bílflökunum.

Að sögn lögreglu fór betur en á horfðist í fyrstu þar sem engin slasaðist alvarlega. Ökumaður jeppans var hins vegar færður á lögreglustöðina þar sem hann er grunaður um ölvun við akstur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert