Innbrot í verslun úrsmiðs á Ingólfstorgi

mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja manna sem eru grunaðir um innbrot í verslun Hermanns Jónssonar, úrsmiðar við Ingólfstorg.   Öryggisfyrirtæki í Reykjavík barst tilkynning um fjögur leytið í nótt, en að sögn lögreglu voru mennirnir farnir þegar öryggisvörður kom á vettvang. 

 Hurð í versluninni var spennt upp og sást til tveggja manna á eftirlitsmyndavél í versluninni.  Mennirnir tóku með sér 20-30 armbandsúr af gerðunum Raymond Weil og Revue Homme, en virði þeirra nemur milljónum. 

Lögregla náði góðum myndum af mönnunum. Annar þeirra er um 185 sentímetrar á hæð og var með hvíta húfu, í svartri úlpu og gallabuxum og svörtum strigaskóm.   Hinn var með svarta lambhúshettu, í svörtum jakka með hvítu merki á erminni og í dökkum gallabuxum og svörtum og hvítum skóm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert