Rændi fartölvu með skærum

Ungur þjófur var gripinn eftir að hafa ógnað starfsfólki.
Ungur þjófur var gripinn eftir að hafa ógnað starfsfólki. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Ungur maður sem hrifsaði til sín fartölvu í verslun BT í Kringlunni í Reykjavík um klukkan 3 í dag var handsamaður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í Gerðahverfinu fyrir skömmu. Hann mun hafa ógnað starfsfólki verslunarinnar með eggvopni áður en hann lagði á flótta. 

Að sögn lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu mun ræninginn vera mjög ungur að árum en að svo stöddu er ekki vitað hvort hann hafi komið áður við sögu á þeim bæ.

Heimildarmaður Fréttavefjar Morgunblaðsins segir drenginn hafa ógnað starfsfólki verslunarinnar með skærum er hann lagði á flótta úr versluninni. Hann hafði áður klippt á öryggissnúru við fartölvuna með  skærunum og hrifsað tölvuna.

Drengurinn hvarf á braut í hópi drengja á sama aldri og var hann síðan  handtekinn auk þriggja annara á svipuðu reki í Gerðunum austan við Kringluna.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert