Ökumenn undir áhrifum fíkniefna

Lögreglan í Borgarfirði hefur stöðvað tvo ökumenn á einum sólarhring …
Lögreglan í Borgarfirði hefur stöðvað tvo ökumenn á einum sólarhring fyrir fíkniefnaakstur. mbl.is/Július

Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði ungan ökumann í Borgarnesi við eftirlit fyrr í kvöld og er hann grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Síðastliðna nótt kom upp svipað tilfelli og þá fundust tveir neysluskammtar af hassi við leit í bílnum sem var stöðvaður á þjóðveginum í Borgarfirði.

Ökumaður um tvítugt var stöðvaður á Suðurlandsveginum skammt vestan við Markarfljót af lögreglunni á Hvolsvelli um klukkan átta í kvöld. Vegna gruns um fíkniefnaneyslu var tekið þvagsýni og sýndi það að ökumaður hafði neytt fíkniefna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert