Óprúttnir miðlarar reyna að brjóta niður íslenska fjármálakerfið
Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, sagði á ársfundi Seðlabankans í dag, að sú atlaga, sem þessa dagana væri gerð að íslenskum bönkum og íslenska ríkinu lykti óþægilega af því að óprúttnir miðlarar hafi ákveðið að gera úrslitatilraun til að brjóta niður íslenska fjármálakerfið.
„Þeim mun ekki takast það. En til álita hlýtur að koma að gera alþjóðlega opinbera rannsókn á slíku tilræði við heilbrigð fjármálakerfi," sagði Davíð og vísaði einnig til þess að síðustu mánuði hefði borið á vafasamri hegðun á alþjóðlegum mörkuðum. Nýleg dæmi væru rógsherferð gegn breska HBOS bankanum sem skaðaði hann mikið, þótt tímabundið væri, en það mál væri nú í rannsókn. Þá benti dæmi frá Írlandi í sömu átt.
Fram kom í ræðu Davíðs að skuldatryggingarálag íslenska ríkisins hækkaði í dag í yfir 400 punkta sem væri fráleitt. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á ársfundinum, að fáránleiki skuldatryggingaálagsins verði augljós þegar litið sé til íslenska ríkisins, sem sé nánast skuldlaust en sé engu að síður sett í sama flokk og stórskuldug ríki.
Davíð sagði, að fátt bendi til þess að efnahagslegt vor sé í vændum og rétt væri að ganga út frá því sem vísu, að ástandið á fjármálamörkuðum muni lítið lagast í bráð. Þótt það kunni að lagast fari því fjarri að allt verði eins og áður.
„Hafi menn ekki þegar tekið sér tak er ekki lengur neins að bíða. Leita þarf allra leiða til að styrkja lausafjárstöðu fyrirtækjanna, ekki síst fjármálafyrirtækjanna og samhliða þarf að skoða markaðsmódelin rækilega upp á nýtt. Það má segja að á knattspyrnumáli myndi þetta þýða, að nú sé rétt að pakka í vörn og láta sér nægja marksvon með hraðaupphlaupi ef tækifæri bjóðast þrátt fyrir allt. Þótt ýkt bölsýni sé auðvitað til óþurftar er jafn vont eða verra að gylla stöðuna fyrir sjálfum sér og almenningi og gefa til kynna að einhvers konar töfraleið sé til út úr þessum vanda. „Að ljúga að öðrum er ljótur vani, að ljúga að sjálfum sér hvers manns bani”, sagði þar," sagði Davíð.
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur S Guðmundsson Herra Davíð Oddsson ! -
Gestur Guðjónsson Geir opinberar Þyrnirósarsvefn sinn -
Halldór Þórðarson/dóritaxi Reynt að brjóta fjármálakerfið..... -
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Hann verður nú að klára söguna. -
G. Valdimar Valdemarsson Vantraust og ráðleysi -
Jóhannes Ragnarsson Skipbrot græðgisvæðingarinnar, Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar -
Guðbjörn Jónsson Eru óprúttnir miðlarar aðalvandinn? -
Brjánn Guðjónsson Heyrði ég rétt? -
Vilborg Traustadóttir "Ljótt er sagði langa Gunna" -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Fjárglæframenn -
Guðrún María Óskarsdóttir. Eru þessi orð Davíðs ætluð ríkisstjórninni ? -
Björgvin Guðmundsson Af hverju eru menn hissa á því að krónan falli? -
Villi Asgeirsson Ég vil ekki nöldra... -
Hallur Magnússon #9541 Vanmetnasti bloggari dagsins í dag! -
Baldur Fjölnisson Nei Davíð, það eru okkar eigin heimaræktuðu kálhausar í efnahags- ... -
Jónína Benediktsdóttir En hvar er allur grodi fyrri ara, gotustrakar ? Hvert ... -
Jónas Tryggvi Jóhannsson Smjörklípa á ferð! -
Sveinn Sigurður Kjartansson Og hananú... -
Snorri Magnússon Undarlegt líf... -
Ívar Pálsson Allt löngu fyrirséð
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































