Breytt heimsmynd skapar sóknartækifæri fyrir smærri ríki

Ólafur Ragnar Grímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson. mbl.is/Ómar

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flutti fyrr í dag aðalræðuna á ráðstefnu í Andorra og fjallaði hún um tækifæri smárra ríkja í hagkerfi heimsins.

Heiti hennar á ensku er: The 21st Century: The Renaiss­ance of Small States in Global Business, Innovation and Partner­ships.

Á ráðstefnunni er rætt um stöðu evrópskra smáríkja, einkum Liechtenstein og Andorra, með hliðsjón af tengslum þeirra við Evrópu­sambandið. Ráð­stefnuna sækir fjöldi sérfræðinga, fjármálamanna og forystumanna í þjóðmálum, samkvæmt tilkynningu frá forsetaembættinu.

Í ræðu sinni lýsti forsetinn hvernig hin breytta heimsmynd hefði skapað smærri ríkjum ný sóknarfæri. Þróun Evrópu undanfarna tvo áratugi hefði sýnt styrkleika fjölmargra lítilla og miðlungsstórra ríkja í álfunni, gagnstætt því sem margir hefðu spáð þegar Berlínarmúrinn féll og kalda stríðinu lauk.

Hin smærri ríki hefðu reynst hafa sveigjanleika og sköpunarkraft til að færa sér í nyt þau tækifæri sem upplýsingabyltingin, alþjóðavæðingin og heimsmarkaðurinn hefðu skapað. Ísland væri kjörið dæmi um þessa þróun. Árangur landsins á fjölmörgum sviðum væri til vitnis um að 21. öldin gæti orðið blómaskeið smárra ríkja.

Forseti tók dæmi af íslenskum fyrirtækjum, t.d. á vettvangi orkunýtingar, lyfjaframleiðslu, í rekstri banka og fjármálaþjónustu, smásölu og matvælaframleiðslu, hugbúnaði og upplýsingatækni. Fyrirtæki á öllum þessum sviðum hefðu náð ótrúlegum árangri á alþjóðlegum markaði, bæði í Evrópu og öðrum heimsálfum.

Njóta kosta ESB án aðildar

Ísland nyti ýmissa kosta Evrópusambandsins án þess að vera formlegur aðili að því vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Íslendingar gætu sjálfir gert samninga við ríki í öðrum heimsálfum og væri Ísland fyrsta landið í Evrópu sem væri að undirbúa fríverslunar­samning við Kína.

Vissulega gætu smærri ríki, líkt og hin stærri, átt við margvíslega efnahagslega erfiðleika að etja en rétt væri þá að hafa í huga sögulega sýn. Vék forseti að þeirri umræðu sem verið hefði á alþjóðlegum vettvangi á undanförnum vikum um stöðu íslensks efnahagslífs og fjármálakerfis.

Í því sambandi rifjaði hann upp kafla úr ræðu sem hann flutti í Helsinki fyrir tæpum tveimur árum þegar á svipaðan hátt hefði verið sótt að Íslandi í alþjóðlegum fjölmiðlum og af fyrirtækjum sem væru keppinautar Íslendinga. Sú lýsing væri sláandi lík því sem hefði verið að gerast undanfarið. Engu að síður hefðu íslenskir bankar og fyrirtæki í kjölfar umræðunnar 2006 sýnt glæsilegan árangur næstu misserin.

Þá vék forseti að nauðsyn þess að efla rannsóknir á stöðu og einkennum smáríkja, bæði í Evrópu og á heimsvísu. Hann lýsti starfsemi Smáríkjaseturs sem stofnað hefði verið við Háskóla Íslands fyrir fáeinum árum. Hvatti hann til þess að smærri ríki í Evrópu efldu samstarf sitt og samvinnu og stuðluðu að öflugri fræðilegri umræðu um þau tækifæri sem 21. öldin fæli í sér.

Auk þátttöku í ráðstefnunni átti forseti fundi með forráðamönnum Andorra meðan á heimsókn hans til landsins stóð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert