Tekinn á 150 km hraða

mbl.is/Július

Lögreglan á Hólmavík stöðvaði ökumann á 150 km hraða í Kollafirði um sjöleytið í gærkvöldi.  Að sögn lögreglunnar á Ísafirði er 90 km hámarkshraði á veginum og var málið sent til fulltrúa lögreglustjóra. 

Að sögn lögreglu má ökumaðurinn búast við allt að 130.000 króna sekt og sviptingu á ökuleyfi í einn mánuð, samkvæmt reglugerð um sektir önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert