Sótt um undanþágu frá hvíldartíma ökumanna

Samgönguráðherra, Kristján Möller, mun í vikunni afhenda Eftirlitsstofnun EFTA beiðni um undanþágur fyrir Ísland frá nýrri reglugerð Evrópusambandsins um aksturs- og hvíldartíma ökumanna í samræmi við undanþáguheimildir reglugerðarinnar.

Mun Eftirlitsstofnun EFTA skipa sérstaka nefnd með fulltrúum þeirra þriggja landa sem að stofnuninni standa til að fjalla um þessa beiðni. Verður þetta í fyrsta sinn þar sem sótt er um undanþágu frá reglugerð ESB hjá stofnuninni, samkvæmt frétt á vef Samtaka atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög sendu í desember síðastliðnum sameiginlega beiðni með ASÍ og Starfsgreinasambandinu til samgönguráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins um að sótt yrði um slíkar undanþágur en þær ganga m.a. út á að heimilt verði að lengja daglegan aksturstíma í allt að 11 klukkustundir tvisvar í viku á akstursleiðum sem fara yfir 400 kílómetra.

„ Ný reglugerð ESB um aksturs- og hvíldartíma ökumanna mun þrengja enn að erfiðum vinnuskilyrðum ökumanna. Samkvæmt reglugerðinni er hámarks daglegur aksturstími 9 klukkustundir en heimilt verður að lengja hann í 10 klukkustundir tvisvar sinnum í viku. Þá verður ökumaður að gera hlé á akstri í a.m.k. 45 mínútur samfellt eftir akstur í fjóra og hálfa klukkustund. Undir þessar reglur og þar með skyldu til að hafa ökurita í bifreiðinni munu nú einnig falla minni farþegaflutningabifreiðar fyrir fleiri en níu farþega að ökumanni meðtöldum, en áður miðuðust þær eingöngu við ökutæki sem ætluð voru fleiri en 17 manns," samkvæmt frétt á vef SA.

Undanþágubeiðnir SA og ASÍ ganga út á að heimilt verði að lengja daglegan aksturstíma í allt að 11 klukkustundir allt að tvisvar í viku á akstursleiðum sem fara yfir 400 kílómetra en með því yrði tryggt að hægt verði að komast á helstu áfangastaði flutningabifreiða úti á landi jafnt að sumri sem vetri til.

Þá er einnig farið fram á að almennur aksturstími fram að vinnuhvíld verði 5 klukkustundir á akstursleiðinni milli Reykjavíkur og Freysness á Austurlandi, en ekki er um aðra fýsilega hvíldarstaði fyrir bílstjóra að ræða á þeirri leið.

Auk þessa er farið fram á undanþágu frá vikulegum hvíldartíma þannig að hægt verði að fresta frídegi bílstjóra fram yfir 12 daga vegna aðstæðna þegar farið er með farþega um hálendi Íslands svo og undanþágu fyrir farþegaflutninga til og frá Keflavíkurflugvelli þannig að hægt verði að fara með hópa utan af landi að næturlagi í morgunflug án þess að taka 45 mínútna hlé, enda enginn hvíldarstaður á þessum leiðum opinn að næturlagi. Er það mat SA að undanþágur þessar séu ekki þess eðlis að umferðaröryggi verði á nokkurn hátt stefnt í hættu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert