Stúlka hafði samráð við réttargæslumann

Sautján ára stúlka, sem tilkynnti lögreglu að hún hefði orðið fyrir nauðgun á skemmtistað í Reykjanesbæ aðfaranótt sunnudags, tók ákvörðun um að kæra ekki atburðinn í samráði við réttargæslumann.

Um leið og tilkynning barst lögreglu fór mál hennar í ákveðinn farveg en ávallt ber að tilnefna réttargæslumann þegar grunur leikur á að framið hafi verið kynferðisbrot og brotaþoli er yngri en 18 ára. Auk þess er lögreglu skylt að tilkynna slík mál barnaverndarnefnd.

Skv. upplýsingum sem fengust var öllum reglum fylgt í kjölfar tilkynningarinnar og hlaut stúlkan stuðning og ráðgjöf. Eftir nánari umhugsun og samráð við réttargæslumann komst hún að þeirri niðurstöðu að kæra ekki. Málið hefur verið látið niður falla.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert