Landspítalinn opinbert hlutafélag?

Vel kemur til greina að gera Landspítalann að opinberu hlutafélagi. Þetta er mat Björns Zoëga, annars starfandi forstjóra spítalans. Vilhjálmur Egilsson, formaður nefndar um Landspítalann, segir slíkt rekstarform geta aukið sveigjanleika í rekstri. Þetta kemur fram á fréttavef RÚV. 

 Nokkurs óróa gætir meðal starfsmanna Landspítalans vegna óvissu um framtíð hans en nefnd sem Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra skipaði í október til að skoða rekstur Landspítalans gaumgæfilega mun skila niðurstöðum sínum í júní.

Vilhjálmur Egilsson segir að skoðað verði hvort gera eigi Landspítalann að opinberu hlutafélagi en að nefndin hafi ekki tekið ákvörðun um neitt enn. Hann viti hins vegar til þess að vilji sé til þess hjá mörgum innan spítalans að svo verði og að reynsla frá Noregi sé góð. Verði Landspítalinn gerður að opinberu hlutafélagi gæti það aukið sveigjanleika í rekstri.

Björn Zoëga segir að sér finnst koma til greina að einfalda stjórnun spítalans, hvort sem það verði gert með því að breyta lögum eða rekstrarformi spítalans.

Magnús Pálsson, hætti sem forstjóri spítalans í byrjun mánaðarins og nýr forstjóri verður ekki ráðinn fyrr en 1. september. Á meðan gegna Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, og Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga, sameiginlega starfi forstjóra spítalans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert