Losun gróðurhúsalofttegunda jókst um 14%

Álver Norðuráls á Grundartanga.

Álver Norðuráls á Grundartanga. mbl.is

Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda jókst hér á landi úr 3710 þúsund tonnum árið 2005 í 4235 þús. tonn árið 2006. Það er aukning um 525.000 tonn, eða 14,2%.

Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Umhverfisstofnun hefur tekið saman fyrir skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Bonn. Þetta er mun meiri aukning en spár hafa gert ráð fyrir.

Samkvæmt upplýsingum frá umhverfisráðuneytinu hefur Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, óskað eftir nýrri spá frá Umhverfisstofnun og mati á því hvort líkur séu á að Ísland fari fram úr skuldbindingum sínum samkvæmt Kýótó-bókuninni.

Ráðuneytið segir, að stærsta hluta aukningarinnar megi skýra með aukinni losun frá áliðnaði, sem jókst um 404.000 tonn milli 2005 og 2006, eða um 89%. Aukningin er öll frá álveri Norðuráls á Grundartanga og tengist stækkun álversins þar. Mestu munar um losun flúorkolefna (PFC), sem fór úr 18 þúsund tonnum CO2-ígilda 2005 í 319 þúsund tonn 2006. Þessi losun fellur undir almennar losunarheimildir Íslands samkvæmt Kýótó-bókuninni, en ekki íslenska ákvæðið svokallaða, að sögn ráðuneytisins. 

Losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum jókst um 146.000 tonn milli áranna 2005 og 2006, eða um 17%, að langmestu leyti vegna vegasamgangna. Umhverfisráðherra óskar eftir því að Umhverfisstofnun skoði losun frá samgöngum og beri saman losun á mann á Íslandi og í öðrum ríkjum sem bera skuldbindingar í loftslagsmálum.

Losun frá sjávarútvegi dróst saman um 113.000 tonn á milli áranna 2005 og 2006, eða um rúm 15%. Samdráttur var í losun bæði frá fiskiskipaflotanum og fiskimjölsverksmiðjum. Losun frá landbúnaði jókst um 33.000 tonn, eða um tæp 7%. Skipting á losun eftir uppsprettum er að finna á kökuriti hér að neðan, auk línurits yfir þróun í losun frá stóriðju, samgöngum, sjávarútvegi og landbúnaði 1990-2006. Losunartölur frá 2007 liggja enn ekki fyrir. Binding kolefnis með skógrækt og landgræðslu nam um 358.000 tonnum árið 2006.

Losun gróðurhúsalofttegunda jókst um rúm 24% frá 1990 til 2006. Á skuldbindingartímabili Kýótó-bókunarinnar, 2008-2012, má losun þessara lofttegunda á Íslandi ekki aukast meira en 10% miðað við losun árið 1990. Að auki hefur Ísland sérstaka heimild til aukningar á losun koldíoxíðs frá stóriðju, íslenska ákvæðið.

Auk þess að óska eftir nýrri losunarspá frá Umhverfisstofnun, mun ráðherra boða fulltrúa álfyrirtækjanna til fundar til þess að ræða skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum. Árangur hefur náðst á undanförnum árum í minnkun á losun PFC og hefur losunin hérlendis síðustu ár verið með því lægsta sem þekkist á tonn af framleiddu áli. Yfirleitt er nokkur aukning á losun í upphafi starfstíma álvera eða þegar nýjar framleiðslueiningar eru teknar í notkun.

Ráðuneytið segir, að á fundinum með álfyrirtækjunum verði farið yfir þessa losun, hvort hætta sé á því að hún verði meiri en spáð hafði verið og til hvaða ráðstafana sé hægt að grípa ef í það stefnir.

(See attached file: Losun gróðurhúsalofttegunda 2006.doc)(See attached file: mynd1.jpg)(See attached file: mynd2.jpg)(See attached file: mynd3.jpg)

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði â...
Landcruiser 120 VX, 2003.
Til sölu Lc 120 vx 2003 disel ek.220Þ Topplúga.8manna.leður.krókur , 33" de...
Íþróttarimlar óskast
Rimlar (eins og í íþróttahúsum/leikskólum) óskast til kaups, mega vera gamlir og...
ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR !!!!!!!!!!
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við BYKO. Mikið úrval af fallegum ...
 
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...