8 fluttir á slysadeild

Frá slökkvistarfinu að Dalbraut 27 í dag
Frá slökkvistarfinu að Dalbraut 27 í dag mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Átta voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir eldsvoðann að Dalbraut 27 í Reykjavík síðdegis í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slysadeild voru meiðsl flestra minniháttar nema konunnar sem var í íbúðinni þar sem eldurinn kom upp. Hún liggur alvarlega slösuð á gjörgæsludeild.

Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum veittu níu sjálfboðaliðar og starfsfólk frá Rauða krossinum íbúum hússins að Dalbraut 27 aðhlynningu og sálrænan stuðning en í húsinu eru herbergi og íbúðir fyrir aldraða. Íbúar 16 herbergja gátu ekki snúið heim til sín fyrir nóttina og var Rauði krossinn ásamt starfsfólki Dalbrautar í sambandi við aðstandendur þeirra og útvegaði þeim gistingu sem á þurftu að halda. Þá var starfsfólki boðin áfallahjálp.

Eldurinn kom upp í íbúð á annarri hæð hússins. Ekki er vitað um eldsupptök. Um klukkan 17:15 var tilkynnt um eldinn og að einn íbúi væri inni í íbúðinni þar sem eldurinn hafði komið upp og sendu bæði slökkvilið og lögregla á höfuðborgarsvæðinu mikinn mannskap á svæðið.  Reykkafarar fóru inn og sóttu konuna. Um 50 íbúar í húsinu þurftu á aðstoð að halda við að komast út úr húsinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert