Landsvirkjun gagnrýnir fræðaþing um Urriðafoss

Urriðafoss í Þjórsá.
Urriðafoss í Þjórsá. mbl.is/Sigurður Jónsson

Landsvirkjun gagnrýnir hvernig staðið er að fræðaþingi um Urriðafossvirkjun, sem áhugafólk um samfélags- og umhverfismál í Flóahreppi hefur boðað til í Þingborg í kvöld. Segir Landsvirkjun að þessi fundur sé ekki heppilegur vettvangur til að koma á framfæri upplýsingum um Urriðafossvirkjun.

Landsvirkjun segir, að aðstandendur fundarins hafi auglýst undanfarna daga á Suðurlandi og í dagblöðum dagskrá þar sem kynnt sé að fulltrúi Landsvirkjunar fjalli um Urriðafossvirkjun á fundinum. Landsvirkjun hafi ekki gefið vilyrði fyrir því að koma til þessa fundar og muni ekki gera það. Fyrirtækið segist harma þessi vinnubrögð.

Fyrirtækið segir að það veki athygli að fjallað verði um jarðskjálfta og væntanlega áhrif þeirra á virkjunina. Hvorki hönnuðinum né þeim sem unnu áhættumat vegna hennar sé boðið að kynna sín sjónarmið. Þá verði fjallað  um lífríki Þjórsár og laxveiði en fulltrúa Veiðimálastofnunar, sem unnið hafi viðamiklar rannsóknir á þessu efni, sé ekki boðin þátttaka.

Einnig flyt erindi lögfræðingur, sem standi að stjórnsýslukæru á hendur Flóahreppi og Landsvirkjun sem sé til meðferðar hjá stjórnvöldum. Ekki sé tímabært að málsaðilar standi að umræðum um það efni nú.

Landsvirkjun segist hafa haldið margar kynningar á virkjuninni á Suðurlandi og haldi þar úti fréttablaði um virkjanir í Þjórsá. Þá hafi fyrirtækið sett upp vefsíðuna www.thjorsa.is þar sem hægt sé að nálgast upplýsingar um áform fyrirtækisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert