Segir aðstoðarmann borgarstjóra biðjast vægðar

Óskar Bergsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins,segir Ólöfu Guðnýju Valdemarsdóttur, aðstoðarmaður borgarstjóra,  biðjast vægðar í yfirlýsingu sem hún hefur sent frá sér varðandi umræðu um ítrekað klúður í stjórnsýslu borgarinnar.

Yfirlýsing Óskars um málið fylgir í heild sinni hér á eftir:

„Ólöf Guðný Valdemarsdóttir, aðstoðarmaður borgarstjóra, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún biðst vægðar í umræðunni um ítrekað klúður í stjórnsýslu borgarinnar. 

Auðvelt er að setja sig í spor starfsmanna á skrifstofu borgarstjóra, sem ræður ekki við það verkefni sem Sjálfstæðisflokkurinn fól honum, þegar ákall um miskunn berst frá aðstoðarmanninum. Slíkt undur hefur aldrei gerst í íslenskum stjórnmálum og verður enn einkennilegra þegar horft er til þess að umræðan um ráðningu framkvæmdastjóra miðborgarinnar hafði aðeins staðið í tvo daga þegar neyðarkallið barst.

Hitt er ekki síður sérstakt að í yfirlýsingu aðstoðarmannsins er það fullyrt að heiðarleiki borgarstjórans verði ekki dreginn í efa hvort sem um þetta mál er að ræða eða einhver önnur. Það er nokkuð sérstakt að lögð sé jafn rík áhersla á heiðarleika einstaklinga eins og borgarstjóri og aðstoðarmaður hans gera. Að því tilefni er rétt að rifja upp að Ólafur F Magnússon hefur sennilega sýnt af sér mestu óheilindi sem nokkur stjórnmálamaður hefur gert svo mér reki minni til. Á kosninganótt vorið 2006 tók hann upp viðræður við Framsóknarflokk, Samfylkingu og VG um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Í þeim viðræðum óskaði hann eftir því að taka hádegismat og úr því matarhléi kom hann ekki aftur. Hann endurtók síðan leikinn þegar hann myndaði meirihlutann við Sjálfstæðisflokkinn í janúars.l. og laug að samherjum sínum allt fram að því að hann birtist í fjölmiðlum með málefnasamning við Sjálfstæðisflokkinn uppá vasann. Að tala um heiðarleika og heilindi með lygaþvæluna og svikin frá sjálfum sér skrifað á ennið er móðgun við alla þá sem ennþá fylgjast með þessum farsa. "

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert