Hefur áhyggjur af borgarmálum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir á fundinum í Kópavogi í kvöld.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir á fundinum í Kópavogi í kvöld. mbl.is/G. Rúnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra lýsti yfir áhyggjum sínum af ástandinu í borgarstjórninni, á fundi sjálfstæðismanna í  Hlíðarsmára í Kópavogi í kvöld. Þá sagði Þorgerður að hún treysti fólki að kjósa um það  á næsta kjörtímabili um hvort Ísland eigi að vera utan eða innan Evrópusambandsins.

„Ég held það dyljist engum hvernig sú saga hefur verið og það vita allir sem fylgjast með pólitík að ástand á þeim bænum, þá er ég ekki bara að tala um meirihlutann heldur líka minnihlutann, er ekkert sérstaklega gott," sagði Þorgerður.

Hún sagði flokkinn ná að koma málum, sem hann vinnur að fram, en ekki nægilega vel á framfæri. Það sem Sjálfstæðisflokkurinn næði að koma fram næði því miður ekki nægilega vel eyrum almennings.

Þorgerður talaði um að á lokaspretti þingsins væri stefnt að því að koma ákveðnum málefnum í gegn, t.d. reyna að klára nýja rammalöggjöf er varðaði leik-, grunn- og framhaldsskólana. Stefnt væri að því að minnka brottfall í framhaldsskólum og fjölga í iðn- og starfsnámi.

Þá væri ógnvænlegt að horfast í augu við aukningu verðbólgu en stefnt væri að því að ná henni hratt niður.  Einnig kom Þorgerður inn á Evrópusambandið og inngöngu í það. Sagði hún að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að vera í forustu í Evrópuumræðu og stuðla að upplýstri umræðu um málið. Flokkurinn ætlaði að fara í fundaherferð þar sem Evrópumálin verði rædd.

Hún sagði nauðsynlegt i að tala um gallana jafnt sem kostina, það dyldist t.d. engum að aðild gæti fylgt aukið atvinnuleysi og vaxandi verðbólga. Áður en hægt væri að ræða aðild þyrftum við að vinna heimavinnuna okkar og gera úttekt á peningamálastefnu landsins.

Þá þyrfti að gera breytingar fljótlega á stjórnarskránni, m.a. með tillit til þjóðaratkvæðagreiðslna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert