Í fangelsi fyrir kynferðisbrot

Hús Hæstaréttar.
Hús Hæstaréttar.

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að karlmaður á sjötugsaldri, Róbert Árni Hreiðarsson, sæti 3 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum en var sýknaður af ákæru fyrir að hafa barnaklám í sinni vörslu. Maðurinn, sem er starfandi lögmaður, er einnig sviptur réttindum til að vera héraðsdómslögmaður.

Brotin voru framin á árunum 2005 og 2006. Róbert Árni tældi þrjár af stúlkunum með blekkingum og peningagreiðslum til kynferðismaka við sig, en þær voru þá 14 og 15 ára. Hann komst í samband við stúlkurnar í gegnum netið og í flestum tilvikum sagðist hann vera táningspiltur. Greiddi hann einni stúlkunni að minnsta kosti 32 þúsund krónur fyrir kynferðismök í tvö skipti, sem áttu sér stað í bifreið Róberts.

Alvarlegast var talið samband Róberts við fimmtán ára stúlku, sem stóð yfir í talsverðan tíma. Hafði hann margsinnis við hana samræði og hélt brotunum til að mynda áfram eftir að vera kunnugt um að grunur léki á að hann hefði brotið gegn annarri stúlku.

Einnig var Róbert sakfelldur fyrir að tæla þriðju stúlkuna, sem þá var 15 ára, til að hafa við sig munnmök en fyrir það greiddi hann 14 þúsund krónur auk þess að gefa henni áfengi. Fjórðu stúlkuna reyndi hann ítrekað að tæla til kynferðismaka, m.a. með því að bjóða henni peningagreiðslur. Hún varð hins vegar ekki við óskum hans.

Hæstiréttur segir, að við ákvörðun refsingar sé litið til þess að Róbert Árni nýtti sér yfirburði aldurs og reynslu gagnvart fjórum ungum stúlkum sem hann vissi að stóðu höllum fæti. Hafi brot hans verið ítrekuð og alvarleg og brotavilji hans einbeittur. Þá var litið til þess að Róbert Árni var starfandi lögmaður á þeim tíma sem brotin voru framin og voru því einkar ljósir þeir mikilsverðu hagsmunir er brot hans beindust að. 

Róbert Árni var einnig dæmdur til að greiða stúlkunum bætur, frá 300.000 til 1 milljónar króna. Þá var hann dæmdur til að greiða málskostnað fyrir Hæstarétti, rúmar 1,5 milljónir króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert