Uppiskroppa með flóttaleið

mbl.is/Július

Ökumaður sem lögreglan mældi á 123 km hraða á Breiðholtsbraut í nótt reyndi að stinga af inn í Norðlingaholt þar sem hann lagði út á malarstíg að sumarbústað við Elliðavatn, en þar lauk flóttanum skyndilega er veginn þraut.

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem þessi ökumaður komst í kast við lögin, og í ljós kom að hann var án ökuréttinda því að hann hafði áður verið sviptur þeim. Má hann búast við töluverðri sekt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert