Fjölmenni á fundi um flóttafólk á Akranesi

Mikið fjölmenni er á kynningarfundinum á Akranesi.
Mikið fjölmenni er á kynningarfundinum á Akranesi. mbl.is/Árni Sæberg

Mikið fjölmenni er á kynningarfundi, sem nú stendur yfir á Akranesi um móttöku flóttamanna en fundurinn er á vegum  félags- og tryggingamálaráðuneytis, Akraneskaupstaðar og Rauða Kross Íslands.

Góður rómur hefur verið gerður að erindum frummælenda á fundinum. Þar hafa m.a. verð kynnt flóttamannaverkefni og hvaðan fólk hefur komið hingað til lands. Þá hefur verið skýrt frá reynslu af móttöku flóttamanna á Hornafirði og Reykjanesbæ.

Bæjarstjórn Akraness hefur ákveðið að taka á móti allt að 30 flóttamönnum ef um semst við ríkisvaldið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka