Sprenging í húsbíl í Grindavík

Talsverður eldur logaði í húsbílnum.
Talsverður eldur logaði í húsbílnum. mynd/Pálmi Örn

Eldur kviknaði í húsbíl í Grindavík um klukkan 22 í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum virðist sem sprenging hafi orðið þegar karlmaður á sjötugsaldri og tveggja og hálfs árs gamall drengur voru á leið inn í húsbílinn.

Maðurinn og drengurinn brenndust talsvert og voru fluttir með sjúkrabifreið á sjúkrahús. Drengurinn reyndist vera með meiri brunasár en maðurinn. Hann var með nokkuð umfangsmikinn bruna, einkum á höfði og höndum, og var lagður á gjörgæsludeild til frekari meðferðar. Maðurinn var við skikkanlega líðan, að sögn læknis.

Björgunarsveitarmenn úr Grindavík náðu að slökkva eldinn áður en slökkvilið kom á vettvang. Þrír björgunarsveitarmenn voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar hjá lækni með snert af reykeitrun.

Málið er í rannsókn, að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert