Íbúafundur hafinn á Selfossi

Mikið fjölmenni er á íbúafundinum á Selfossi, sem hófst klukkan …
Mikið fjölmenni er á íbúafundinum á Selfossi, sem hófst klukkan 17. mbl.is/Golli

Mikið fjölmenni er á íbúafundi, sem nú stendur yfir í Sunnulækjarskóla á Selfossi vegna jarðskjálftanna á Suðurlandi. Í kvöld verður haldinn samskonar fundur í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka en fundirnir eru á vegum bæjarstjórnar Árborgar.

Íbúar eru hvattir til að sækja fundina en þar sitja fyrir svörum fulltrúar Rauða krossins, sveitarfélagins, almannavarna, lögreglu, Slysavarnafélagsins Landsbjargar, heilbrigðisþjónustu og Viðlagatryggingar Íslands.

Fjölmenni er á íbúafundinum.
Fjölmenni er á íbúafundinum. mbl.is/Golli
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert