Bíll við bíl á Suðurlandsvegi

mbl.is/Steinn Vignir

Mjög mikil umferð er á Suðurlandsvegi fyrir austan fjall og má segja að bíll sé við bíl frá Kömbum að Selfossi.  Löng helgi er framundan hjá mörgum.

Lögreglan á Selfossi sagði umferðina mjög hæga en ganga að mestu áfallalaust. Eitthvað hefði verið um minni háttar óhöpp og einn árekstur hefði orðið við hringtorgið í Hveragerði þar sem einum bíl var ekið aftan á annan. Varð að draga aðra bifreiðina burta með krana. Engin meiðsl urðu á fólki enda allir í belti, eins og vera ber.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert