Brúðubíllinn bilaður

Brúðubíllinn er bilaður.
Brúðubíllinn er bilaður. mbl.is/G. Rúnar

„Þetta er algjört áfall,“ segir Helga Stephensen, en Brúðubíllinn bilaði á fimmtudag. „Ég þurfti að aflýsa tveimur sýningum í gær. Börnin streymdu á staðinn sem átti að sýna á og þetta var mikið skúffelsi. Þau skilja þetta ekki og finnst það ótrúlegt að hann geti verið eins og aðrir bílar.“

Helga hefur aldrei þurft að aflýsa sýningu á þeim 28 árum sem hún hefur starfað. „Ef það verður ekki búið að gera við hann 17. júní þá læt ég draga hann á staðinn!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert