Karlmenn á sextugsaldri ölvaðir í umferðinni

Lögreglan stöðvaði tvo ölvaða karlmenn á sextugsaldri í umferðinni gær.
Lögreglan stöðvaði tvo ölvaða karlmenn á sextugsaldri í umferðinni gær. mbl.is

Akstur tveggja ökumanna var stöðvaður í höfuðborginni í gær vegna gruns um ölvun. Um var að ræða tvo karlmenn sem báðir eru á sextugsaldri. Þeir voru réttindalausir.

Lögreglan stöðvaði einnig för tvítugs pilts á Miklubraut síðdegis en sá var einnig undir stýri þrátt fyrir að vera próflaus. Piltur á svipuðum aldri var tekinn við akstur á Kringlumýrarbraut í nótt en hann var undir áhrifum fíkniefna. Sá hefur aldrei náð sér í ökuréttindi, en var þrátt fyrir það tekinn undir stýri í annað skiptið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert