„Manni leið bara eins og glæpakvendi"

Sigríður Friðriksdóttir er 100 ára í dag stækka

Sigríður Friðriksdóttir er 100 ára í dag mbl.is/Ómar

Morgunblaðið Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is

„Ertu nú alveg viss um að þér gagnist nokkuð að tala við mig, frystihúsakerlingu í 40 ár? Verður þá ekki fiskilykt af Mogganum?“ Þannig var viðkvæðið hjá Sigríði Friðriksdóttur þegar blaðamaður óskaði eftir spjalli við hana, en hún vildi ekki meina að hún hefði frá neinu merkilegu að segja þrátt fyrir að eiga hvorki meira né minna en 100 ára afmæli í dag.

Hún sættist þó á að segja upp og ofan af langri ævi og segir að oftast nær hafi ekkert komist að nema eitt. „Það var ekkert nema fiskur í Eyjum, allt snerist um fisk bæði vetur sem sumar og þetta var tómt puð,“ segir Sigríður, en hún átti langa starfsævi við fiskvinnslustörf og fór það orð af henni að hún væri margra manna maki við handflökun. Aðspurð vill hún þó ekki staðfesta það og gerir lítið úr eigin vinnusemi; „en ef þig langar að vita eitthvað um mig þá ættirðu að tala við einhvern annan en mig. Það kannast allir við hana Siggu Friðriks.“

Ekki trú á kvenfólki í trúnaðarstörfum

Það fer þó ekki á milli mála að Sigríður hefur verið vel metinn starfskraftur hjá Ísfélagi Vestmannaeyja, þar sem hún starfaði lengst af, því þar gegndi hún lengi starfi verkstjóra sem var fátítt meðal kvenna á þeim tíma. Sigríður segist líklega hafa verið beðin um það þar sem hún var dugleg og gat slegið frá sér, en segir jafnframt að hún hafi oft fundið fyrir því að kvenfólk nyti ekki sannmælis því fæstir hafi talið þær eiga nokkuð erindi í ábyrgðarstörf. Það hafi þó sem betur fer breyst síðan þá. Hún nefnir sem dæmi þegar eftirlitsmenn hafi komið frá Fiskimannanefnd til að líta eftir fiskverkuninni í Vestmannaeyjum.

„Þeir komu þrír sjeffar úr bænum, og þá er maður af Akureyri, Bassi nefndur, fyrir utan og þeir spyrja með miklu veldi hver hafi eiginlega umsjá með síldinni hér. „Hún Sigga Friðriks sér um það,“ svaraði Bassi.“ Segir Sigríður að þá hafi eftirlitsmönnunum orðið bilt við og hváð: „Og trúið þið henni fyrir því?“ Þeir hafi þá ekki séð ástæðu til að koma inn og ræða við hana um verkstjórnina. „Manni leið bara eins og glæpakvendi, en svona voru karlarnir í þá tíð. En þær eru nú frekar farnar að mala þá undir sig núna, konurnar, ég held það nú.“

Sigríður ber hins vegar yfirmanni sínum hjá Íshúsinu, Einari „ríka“ Sigurðssyni góða söguna og segir að betri atvinnurekandi hafi hvergi fundist, enda hafi vinnuandinn verið með eindæmum góður. „Hann tók allan hópinn, árið 1940, og fór með okkur á þremur bátum upp undir fjöllin. Þar var slátrað lömbum, þar voru sett niður tjöld og slegið til veislu. Hann var góður við starfsfólkið.“

Fúlsað og sveiað við fiskilyktinni

Sigríður bjó í Vestmannaeyjum fram til gosársins 1973, en flutti þá með eiginmanni sínum, Halldóri Elíasi Halldórssyni til Reykjavíkur. „Gosið fór ógurlega illa með mig, húsið mitt fór undir hraun og hús sonar míns líka. Svo var ég afar ósátt við það hvernig bærinn var skipulagður eftir gosið og færður vestur á hamar og ákvað að þangað skyldi ég aldrei fara.“ Sigríður hefur því búið í Reykjavík alla tíð síðan og kunnað vel við sig, þótt ekki hafi verið litið upp til þeirra sem unnu í fiski að hennar sögn. „Fólk hafði viðbjóð á fiskilyktinni, og hún er ekkert sérstaklega góð ég skal viðurkenna það, en þetta var lifibrauð þjóðarinnar á þessum tíma. Ég keypti mér íbúð í Efstalandi 13 og þar var ein frúin, ógurlega fín, sem fitjaði upp á nefið og sagði „það er fiskilykt í ganginum hér núna.“ Þá glotti ég nú bara og sagði „jah, hún getur varla verið af mér, því ég er búin að vera þrjá mánuði hér í höfuðborginni“.“

 Eyjamaður af lífi og sál

Sigríður fæddist á Rauðhálsi í Mýrdal hinn 3. júlí 1908. Foreldrar hennar voru Þórunn Sigríður Oddsdóttir og Friðrik Vigfússon, bændur á Rauðhálsi. Þau systkinin voru 14 talsins, en þegar Sigríður var aðeins 8 ára gömul missti hún föður sinn og var heimilið þá leyst upp. Tveimur árum síðar fór Sigríður í fóstur til Vestmannaeyja, til hjónanna Jennýjar Guðmundsdóttur og Jóns Guðmundssonar á Mosfelli.

Í Eyjum bjó hún næstu 55 árin. Hún giftist Halldóri Elíasi Halldórssyni sjómanni og byggðu þau sér hús á Helgafellsbraut 23 þar sem þau bjuggu fram að gosi árið 1973, en fluttu þá til Reykjavíkur. Halldór lést árið 1975 en Sigríður bjó áfram á heimili þeirra í Efstalandi 12 til ársins 2004 þegar hún flutti á Hrafnistu. Hún segist þó alla tíð hafa litið á sig sem Eyjamann. Sigríður á einn son, Jón Berg Halldórsson, fæddan 1935.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
OPEL ASTRA ENJOY
Opel Astra Enjoy Nýskr. 4/2007, ekinn 93 þ. km, bensín, 5 g...
Húsasmíðameistari.
Tek að mér smíði sumarhúsa. Get séð um frá sökkli að fullbúnu. Fagmennska uppl. ...
www.flutningur.is 5753000 sendibilastöð
Stöðin býður upp á allar stærðir sendibíla og veitir trausta og umfram allt góð...
VW Passat 2,0 Comfortline 5.2003
Til sölu VW Passat 2,0 Comfortline 5.2003 ekinn 147 þ.km Sjálfskiptur nýskoðaður...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....