Kæra vegna Paul Ramses hefur ekki borist ráðuneyti
Sigrún Erna Geirsdóttir sigrunerna@mbl.isFundi allsherjarnefndar Alþingis var að ljúka. Á honum kom meðal annars fram að kæra vegna máls Paul Ramses hefur ekki borist dómsmálaráðuneytinu. Komi hún þangað mun hún verða tekin til gaumgæfilegrar skoðunar.
Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður nefndarinnar, sagði nefndina hafa fengið betri upplýsingar um málið frá þeim aðilum sem nefndin kallaði á fund sinn. Á honum voru fulltrúar dómsmálaráðuneytis, Útlendingastofnunar, Amnesty, Rauða krossins og Alþjóðahúss.
Á fundinum var sömuleiðis rætt almennt um stöðu hælisleitanda á Íslandi og löggjöf sem þá varða.
Þá hefði komið fram frá fulltrúum dómsmálaráðuneytis að kæra vegna máls Paul Ramses hefði enn ekki borist ráðuneytinu en lögmaður Paul Ramses, Katrín Theodórsdóttir segir að kæra muni berast í dag eða morgun.
Ágúst segir að ef kæra verði send ráðuneytinu muni hún verða skoðuð gaumgæfilega og þar með verði boltinn hjá þeim. Þá verði málið opið á ný. Fyrst kæran hefur ekki borist þá er boltinn enn hjá lögmanni Paul Ramses.
Margir þeirra gesta sem komu á fundinn töldu að endurskoða þyrfti ákvörðun Útlendingastofnunar en það lægi þó nokkuð ljóst fyrir að málsmeðferðarreglur hefðu ekki verið brotnar. Allur ferill málsins hefði verið með eðlilegum hætti.„Það er svo annað mál hvort að þessi ákvörðun hafi verið rétt vegna sérstakra tengsla mannsins við landið, bæði út frá mannúðarsjónarmiðum og eins vegna þess að þarna var fjölskyldu sundrað,“ segir Ágúst.
Ágúst segir að ef ráðuneytið fái kæru vegna Paul Ramses hafi ráðuneytið þrjá valkosti:
1. Ráðuneytið getur ógilt ákvörðun Útlendingastofnunar á grundvelli þess að reglur hafi verið brotnar.
2. Ráðuneytið getur staðfest ákvörðun stofnunarinnar.
3. Dómsmálaráðuneytið getur snúið við ákvörðun Útlendingastofnunar og kveðið á um nýja ákvörðun. Þá lætur það framkvæma efnislegt mat á stöðu einstaklingsins en það hefur ekki verið gert.
Ágúst Ólafur sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að það væri skoðun sín að dómsmálaráðherra ætti að endurskoða ákvörðun Útlendingastofnunar og hafa mannúðarsjónarmið í huga. „Ég tel það mikilvægt og sýnist svigrúm fyrir hann að gera það,“ sagði Ágúst.
Ágúst Ólafur sagðist ekki hafa séð ástæðu til þess að nefndin sendi frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna málsins. Einstakir nefndarmenn gætu gert það og hefðu gert það.
Bloggað um fréttina
-
Guðbjörn Guðbjörnsson Björn leggist undir feld líkt og Þorgeir forðum -
Guðný Jóhannesdóttir Mun Paul Ramses sprengja ríkisstjórnina? -
Ómar Ragnarsson Löglegt en siðlaust?
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 25. júlí 2008, Innlent Mál Ramses í höndum ráðuneytisins
- Fimmtudagur, 17. júlí 2008, Innlent Eldur í bíl í Kópavogi
- Föstudagur, 4. júlí 2008, Innlent Ramses farinn af flugvellinum
- Föstudagur, 27. júní 2008, Innlent Háspennurofi brann yfir á Sauðárkróki
- Föstudagur, 4. júlí 2008, Innlent Umferðaróhapp undir Hafnarfjalli
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju





































