Mun ekki friða meira af Þjórsárverum

Geir Haarde forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki munu ganga lengra í friðun Þjórsárvera en sem segir í stjórnarsáttmálanum. Þar kveður á um friðun votlendis. Þetta kemur fram í fréttum RÚV.

Náttúruverndarsamtök Íslands segja í ályktun um málið einboðið að iðnaðarráðherra og/eða umhverfisráðherra leggi fram á Alþingi strax á haustþingi frumvarp eða þingsályktun um friðlýsingu Þjórsárvera í heild sinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert