„Aldrei aftur í sjóinn"
„Ég get lofað ykkur því að ég fer aldrei aftur í sjóinn og aldrei aftur í sundlaug," segir sundkappinn Benedikt Hjartarson hlæjandi en hann synti yfir Ermarsund í gær fyrstur Íslendinga. „Ég hef verið að segja þetta við strákana hérna en það er nú svona meira í gríni."
Benedikt sagði, er blaðamaður mbl.is ræddi við hann í morgun, að hann væri afskaplega feginn því að sundinu væri lokið. Þetta sé ákveðinn áfangi og að með honum sé ákveðinn kafli í lífi sínu bara búinn. Hann hafi þó enn ekki áttað sig almennilega á hlutunum eða ákveðið hvað hann geri næst.
„Ég finn ekki fyrir tómleika, ekki ennþá að minnsta kosti. Er bara rosalega feginn því að þetta sé í höfn. Þetta hafa verið geysilega miklar æfingar allt síðasta árið, sex daga í viku oft þrisvar á dag," segir hann.
Benedikt segist lítið hafa sofið í nótt vegna spennu og sjóriðu. „Loftið í herberginu var á fleygiferð," segir hann. Þá segir hann grafa í úfinum á hálsinum á sér, þar sem saltið hafi brennt húðina, en hann hafi gert ráð fyrir því að það myndi gerast og því gert viðeigandi ráðstafanir.
„Ég er líka með þreytuverki í upphandleggjunum en það er þannig þegar maður syndir þetta langt á skriðsundi að þá notar maður fæturna voða lítið nema sem jafnvægistæki," segir hann. Benedikt fékk krampa í fæturna á fyrri helmingi sundsins og gat því ekki synt bringusund, inn á milli til að hvíla sig, fyrr en á síðari helmingi leiðarinnar. „Ég hafði gert ráð fyrir að synda svona fimm mínútur á hverjum klukkutíma á bringusundi til að hvíla mig en það gekk ekki til að byrja með," segir hann.
„Þetta kom mér á óvart þar sem ég hef aldrei áður fengið krampa en það var ekkert annað að gera en að taka því."
Hann segir það einnig hafa komið sér skemmtilega á óvart hversu góðar viðtökur hann hafi fengið hjá öðrum sundmönnum er hann kom í land. „Það eru hérna allra þjóða kvikindi að reyna þetta og það er mjög mikil samstaða í hópnum," segir hann. „Fólk flykkist að manni þegar maður er búinn að klára til að samfagna manni."
Benedikt synti 61 km leið á 16 klukkutímum og einni mínútu og segir það vera um 48.000 skriðsundtök.
Bloggað um fréttina
-
Ásdís Sigurðardóttir Mikið skil ég hann vel ég nenni ekki lengur í ... -
Erna Hákonardóttir Pomrenke Ekki spurning, Benedikt er íþróttamaður ársins.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 16. júlí 2008, Innlent Tókst að synda yfir Ermarsund
- Fimmtudagur, 17. júlí 2008, Innlent Lafleur: Ákveðinni spennu aflétt
- Mánudagur, 30. júní 2008, Innlent „Barðist við vindinn í 10 tíma"
- Fimmtudagur, 29. maí 2008, Innlent Benedikt Hjartarson reynir aftur við Ermarsund
- Þriðjudagur, 15. júlí 2008, Innlent „Er náttúrulega bara bilun“
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju





































