Elstu krá Ísafjarðar lokað

Langi Mangi á Ísafirði.
Langi Mangi á Ísafirði. mynd/bb.is

Langi Mangi, elsta kaffi- og ölhús Ísafjarðar, leggur um laupana um næstu mánaðarmót. Staðurinn hefur verið rekinn frá árinu 2003 þegar Elfar Logi Hannesson og Marsibil G. Kristjánsdóttir opnuðu hann. Árið 2005 urðu eigandaskipti þegar Guðmundur Hjaltason og Matthildur Helgadóttir keyptu staðinn og hafa þau rekið hann síðan.

Frá stofnun staðarins hefur Langi Mangi verið fastur punktur í tilveru Ísfirðinga og staðið fyrir ýmsum menningarviðburðum svo sem myndlistasýningum, leiksýningum, bókaupplestri, ljóðakvöldum og tónleikum auk hinnar geysivinsælu spurningakeppni Drekktu Betur í viku hverri.

Langi Mangi ætlar þó ekki að deyja hljóðlega heldur mun hann efna til viku kveðjuhátíðar sem stendur frá og með deginum í dag til fimmtudagsins 31. júlí. Margt spennandi verður á dagskrá þessa síðustu daga svo sem ljóðakvöld, bingó, lágmenningarkvöld, drekktu betur, gítarkarókí og lokaball svo eitthvað sé nefnt.

Heimasíða Langa Manga 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert