Leitað að vitnum að umferðarslysi

Lögreglan á höfðuborgarsvæðinu auglýsir eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Suðurlandsvegi við aðrein af Bíldshöfða þann 21 júlí kl. 18:05. Þar lentu saman bílar af gerðinni Toyota Yaris og Nissan, sem ekið var í gagnstæðar áttir.

Niður aðreinina af Bílshöfða var hins vegar ekið öðrum Toyota Yaris bíl og ók ökumaður hennar í veg fyrir hina Toyotuna en henni ekið var í átt að Rauðavatni.

Lögreglan skorar á ökumann þeirrar bifreiðar að gefa sig fram við lögreglu eða ef einhverjir hafa vitneskju um þá bifreið að hafa samband í síma 4441100, rannsóknardeild umferðardeildar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert