Útlit fyrir ágætis veður um verslunarmannahelgina

Einmunablíða hefur verið á Húsavík í dag.
Einmunablíða hefur verið á Húsavík í dag. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Víðáttumikið lægðasvæði verður suður af landinu og verslunarmannahelgina og því verður austan- og norðaustanátt ríkjandi og útlit fyrir ágætisveður um allt land, að því er Veðurstofa Íslands segir.

Gert er ráð fyrir norðaustan 5-10 m/s á föstudag og smáskúrum um landið sunnanvert, einkum fyrripart dags, en skýjuðu að mestu norðanlands og sums staðar þokulofti við ströndina.

Á laugardag og fram á mánudag er útlit fyrir fremur hægan vind. Skýjað með köflum eða bjartviðri og yfirleitt þurrt, en hætt við þokulofti við norðaustur- og austurströndina.

Hlýtt verður í veðri, hiti víða 14 til 22 stig, einna hlýjast vestanlands. Kólnar heldur þegar líður á helgina.

Að næturlagi má búast við þokulofti víða um land og 7 til 11 stiga hita.

Veðrið í miðborg Reykjavíkur er með besta móti.
Veðrið í miðborg Reykjavíkur er með besta móti. mbl.is/GSH
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert