Saving Iceland tekur niður búðir sínar

Félagar í Saving Iceland hlekkjuðu sig m.a. við hlið í …
Félagar í Saving Iceland hlekkjuðu sig m.a. við hlið í Straumsvík. mbl.is/Júlíus

Samtökin Saving Iceland segjast hafa tekið niður búðir sínar á Hellisheiði en þar hefur hópur frá samtökunum dvalið undanfarnar þrjár vikur og skipulagt aðgerðir.

„Fjórðu aðgerðabúðunum er nú lokið en baráttan heldur að sjálfsögðu áfram," segir á heimasíðu samtakanna.

Fólk úr búðunum var í sumar m.a. með aðgerðir í Helguvík, við álverin á Grundartanga og í Straumsvík og í skrifstofu Landsvirkjunar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert