Fjölmenni á íbúafundi

Frá fundinum í kvöld. Fremst sitja m.a. Magnús Þór Hafsteinsson, …
Frá fundinum í kvöld. Fremst sitja m.a. Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins og Guðjón A. Kristjánsson, alþingismaður. mbl.is/hag

Fjölmennt er á íbúafundi í Borgarnesi þar sem fundað er um framtíð Sparisjóðs Mýrasýslu. Fram hefur komið að áætlað tap samstæðu sparisjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins er um 4,6 milljarðar króna.

Á fundinum fullvissaði Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri fundarmenn um það að innistæður þeirra í sparisjóðnum væru tryggar. Í máli hans kom fram, að tap sjóðsins mætti að mestu rekja til lækkunar á  gengi bréfa fjögurra fjármálafélaga, sem fjárfest var í og tengjast öll sparisjóðunum. Þessi fyrirtæki eru Exista, Kista, VBS fjárfestingarbanki og Icebank.

Um 500 manns mættu á fundinn. Ekki var um hitafund að ræða en þungt hljóð var í fundargestum. Á fundinum útskýrðu stjórnendur sparisjóðsins hvers vegna staðan sé jafn slæm og raun beri vitni.

Stjórn Sparisjóðs Mýrasýslu mun leggja fyrir fulltrúaráð sparisjóðsins á föstudag, að stofnfé sjóðsins verði aukið um 2 milljarða króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert