Verðlisti Norðlenska er langt undir væntingum bænda

mbl.is/Brynjar Gauti

Norðlenska matborðið birti í dag, fyrst afurðasölufyrirtækja, verðskrá fyrir sauðfjárafurðir haustið 2008. Þar kemur fram að allir kjötflokkar hækki um 15% og greiðslur fyrir kjöt til útflutnings hækki um tæp 29%.

Á vef Bændasamtaka Íslands segir, að sauðfjárbændur hafi beðið óþreyjufullir eftir verðlistum sláturleyfishafa og ljóst að rekstrargrundvöllur margra sauðfjárbúa sé brostinn við þessi tíðindi. Sauðfjárbændur hafi gert sér vonir um hækkanir allt að 27% eins og fram komi í viðmiðunarverði Landssamtaka sauðfjárbænda sem þau hafa heimild til að birta samkvæmt lögum. 

Á vef Norðlenska er tekið fram að fyrirtækið áskili sér rétt til að breyta verðskránni til samræmis við verðskrá annarra stórra sláturleyfishafa. Þar segir einnig að verðhækkunum þurfi að koma út í verðlagið því rekstur Norðlenska geti ekki tekið þær allar á sig.

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, sagði í samtali við Bændablaðið að verðlistinn frá Norðlenska væri mikið áfall fyrir bændur og langt undir væntingum. „Bændur þurfa að mæta miklum hækkunum á aðföngum, m.a. vegna hækkana erlendis, t.d. á áburði og olíu. Þetta eru þættir í rekstrinum sem bændur hafa engin áhrif á og verða að sækja í hærra afurðaverði,” segir Haraldur.

Fram kemur á vef Bændasamtakanna að hann telji að afurðasölufyrirtækin, sem mörg hver séu í eigu bænda og stjórnað af þeim, þurfi að fara ítarlega yfir þá alvarlegu stöðu sem sé komin upp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert