Á gjörgæsludeild eftir líkamsárás

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi.

Lögreglan á Suðurnesjum handtók á tíunda tímanum í gærkvöldi karlmann sem sló ökumann dráttarbifreiðar föstu hnefahöggi í andlitið á Hringbraut norðan við Grófina. Dráttarbifreiðin var að flytja bifreið árásarmannsins af vettvangi að ósk lögreglunnar. Maðurinn missti meðvitund um tíma og liggur á gjörgæsludeild á Landspítalanum í Fossvogi.

Að sögn lögreglu var árásarmaðurinn  handtekinn og færður á lögreglustöð. Honum var sleppt að lokinni skýrslutöku og má vænta þess að verða ákærður fyrir líkamsárás.

Maðurinn sem varð fyrir árásinni var undir eftirliti lækna til öryggis í nótt, en hann var kominn til meðvitundar í gærkvöldi. Hann mun gangast undir frekari rannsóknir í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert