Bruni í sumarhúsi

slökkvilið
slökkvilið mbl.is

Brunavarnir Árnessýslu voru kallaðar fyrir stundu að sumarhúsi í Ásgarðslandi í Grímsnesi en þar logaði eldur. Húsið er í byggingu. Búið er að ná tökum á eldinum og er verið að reykræsta. Eitthvað tjón hefur orðið innandyra. Ekki er vitað um eldsupptök og er rannsóknardeild á leiðinni á svæðið.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert