Eldsneytisverð lækkar

mbl.is/Frikki

Eldsneytisverð lækkaði um einar sex krónur í dag. Bensínlítrinn kostaði í gær um 165,7 krónur en í dag er lægsta verð 156 krónur, hjá Orkunni við Miklubraut. ÓB býður lægst 162,10, í Grafarholti, Egó býður 164,10 á öllum stöðvum og Atlantsolía sömuleiðis.

Dísilolían er ódýrust hjá Orkunni á Miklubraut en þar fæst hún á 171,80. ÓB býður best í Grafarholti eða á 177,90, Egó selur hana á öllum stöðum á 179,90 og Atlantsolía á sama verði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert