Forsætisráðherra minnist Sigurbjörns Einarssonar
Með herra Sigurbirni Einarssyni biskupi er genginn mikilhæfur trúarleiðtogi og djúpvitur hugsuður, sem hafði með orðræðu sinni og framgöngu meiri og varanlegri áhrif á íslenskt trúarlíf og þjóðfélag en flestir Íslendingar fyrr og síðar, segir Geir H. Haarde, forsætisráðherra í yfirlýsingu en Sigurbjörn lést í morgun 97 ára að aldri.
„Allt til hinstu stundar var hann einlægur og virkur í þeirri köllun sinni að efla trúarvitund Íslendinga og mikilvægi kristinnar trúar í daglegu lífi. Prédikanir herra Sigurbjörns bera vott um innsæi hans og sálmar hans og bænir snerta streng í hjarta sérhvers kristins manns.
Við andlát hans er Íslendingum efst í huga þakklæti fyrir það sem hann veitti þjóð sinni. Hans er minnst sem ástsælasta andlega leiðtoga þjóðarinnar á síðari tímum.
Ég færi ástvinum herra Sigurbjörns einlægar samúðarkveðjur ríkisstjórnar Íslands og þjóðarinnar allrar.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra."
Bloggað um fréttina
-
Torfi Kristján Stefánsson Athyglisvert dálæti sjálfstæðismanna á biskupi - en gott! -
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir Hr. Sigurbjörn Einarsson... -
Flosi Kristjánsson Requiescat in Pace -
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir "Einum er fyrir andann gefið að mæla af speki" ... -
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Votta samúð mína, mikilhæfur maður fallin frá. -
Haraldur Bjarnason Höfðingi er fallinn frá -
Heimir L Fjeldsted Mestur andansmaður er genginn
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 17. júní 2008, Innlent Forsætisráðherra bjartsýnn
- Þriðjudagur, 18. nóvember 2008, Innlent Ábyrgðin liggur hjá bönkunum
- Fimmtudagur, 12. mars 2009, Innlent Geir mótmælir ásökunum
- Þriðjudagur, 18. nóvember 2008, Innlent Farið eftir ráðleggingum Seðlabankans
- Mánudagur, 26. janúar 2009, Innlent Baksvið: Þingvallastjórnina þraut örendið
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































