Hringveginum lokað vegna Akureyrarvöku

Menningarhúsið Hof á Akureyri
Menningarhúsið Hof á Akureyri

Fyrir lokaatriði Akureyrarvöku næstkomandi laugardagskvöld verður þeim hluta þjóðvegar eitt sem telst til bæjarins lokað í tvær klukkustundir, frá klukkan 22 til miðnættis. Svæðið verður þá aðeins opið gangandi vegfarendum enda göturnar nýttar undir skemmtiatriði.

Meðal þeirra er 16 metra löng ástarkaka, opnun á Ástarsafninu og Anna Richardsdóttir sem flýgur undir tónum Ragnhildar Gísladóttur við menningarhúsið Hof, samkvæmt upplýsingum frá Akureyrarstofu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert