Byssumanns leitað

Lögreglan í Keflavík telur sig vita hver var að verki þegar skotið var úr loftbyssu í rúðu íbúðarhúss við Faxabraut laust fyrir klukkan tvö í nótt. Ekki hefur þó tekist að hafa uppi á byssumanninum.

Íbúar hússins sáu þann sem mundaði byssuna og gátu veitt lögreglunni greinargóða lýsingu á bílnum sem hann var í við þriðja mann, að því er fram kemur á Lögregluvefnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert