Ítrekað kveikt í bíl á Suðurnesjum

mbl.is/Július

Tilkynnt var um eld í bifreið við Skólaveg í Reykjanesbæ laust eftir klukkan tíu í gærkvöldi. Þegar lögregla kom á vettvang var mikill eldur í bifreiðinni og er bifreiðin talin ónýt.

Brunavarnir Suðurnesja kom stuttu síðar á vettvang og fljótlega gekk að slökkva eldinn.

Síðar um nóttina var tilkynnt að eldur væri laus  í sömu bifreið á sama vettvangi. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í bifreiðinni í bæði skiptin og er málið í höndum rannsóknarlögreglunnar á Suðurnesjum.

Lögreglan biður alla þá sem gætu gefið upplýsingar varðandi málið að snúa sér til lögreglunnar á Suðurnesjum.

Einn ökumaður var stöðvaður í Reykjanesbæ í nótt grunaður um ölvun við akstur og var hann sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert