Vonbrigði að fá ekki nauðsynlegt svigrúm
Stjórnarráðið. mbl.is/Sverrir
Forsætisráðuneytið lýsir yfir vonbrigðum með það að ráðuneytið skyldi ekki fá nauðsynlegt svigrúm til að svara athugasemdum Breiðavíkursamtakanna áður en farið var með málið í fjölmiðla með þeim hætti sem var gert, þetta kemur fram í yfirlýsingu sem er að finna á vef ráðuneytisins.
Yfirlýsingin er eftirfarandi:
„Að gefnu tilefni skal áréttað að á fundi sem forsætisráðuneytið og Viðar Már Matthíasson prófessor áttu með stjórn Breiðavíkursamtakanna og lögmanni þeirra 11. ágúst sl. kom fram að til stæði að leggja frumvarp um bótagreiðslur fyrir ríkisstjórn á næstu vikum. Sagt hefði verið frá frumvarpsdrögunum í ríkisstjórn sl. vor en eftir væri að útfæra frumvarpið endanlega og því væri svigrúm fyrir samtökin að koma athugasemdum að.
Ráðuneytið óskaði eftir því að fundarmenn virtu trúnað um efni frumvarpsdraganna þar til athugasemdir samtakanna hefðu borist og ráðuneytið tekið afstöðu til þeirra. Á fundi starfsmanns ráðuneytisins með lögmanni samtakanna 29. ágúst sl. var farið yfir ýmsar mögulegar leiðir til að koma til móts við sjónarmið samtakanna eins og þau birtust í bréfi þeirra frá 15. ágúst sl. og áréttað að viðbrögð ráðuneytisins væru væntanleg.
Það eru því vonbrigði að ráðuneytið skyldi ekki fá nauðsynlegt svigrúm til að svara athugasemdum samtakanna áður en farið var með málið í fjölmiðla með þeim hætti sem gert var.
Ráðuneytið mun ekki svara frekari yfirlýsingum af hálfu samtakanna opinberlega heldur halda áfram að leita leiða til að leysa málið með fullnægjandi hætti.“
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Jónsson KLÁRA ÞARF MÁLIÐ STRAX. -
Anna Sigrún Baldursdóttir Hér erum við að sjá dæmi um það ... -
Eyþór Jónsson Sammála ráðuneytinu núna sko -
-
Ragnar Borgþórs Þreytandi málsvarnir og framkoma. -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Vorþingið átti að ganga frá málinu -
Auðun Gíslason Sjúbb!
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 4. september 2008, Innlent Harma framgöngu forsætisráðuneytisins
- Þriðjudagur, 16. desember 2008, Innlent Bótafjárhæðin vonbrigði
- Fimmtudagur, 4. september 2008, Innlent Birt án samþykkis ráðuneytis
- Föstudagur, 7. ágúst 2009, Innlent 300 milljónir fyrir ráðgjöf
- Laugardagur, 20. október 2007, Innlent Segir forstjóra Ratsjárstofnunar hafa hætt í góðu samkomulagi við ráðuneytið
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































