Dæmdur í kjölfar búðahnupls

Tvítugur maður sem kom til landsins fyrir örfáum dögum, var um helgina staðinn að hnupli í verslunum Smáralindar. Andvirði varningsins var yfir tvö hundruð þúsund krónur. Maðurinn viðurkenndi brot sín hjá lögreglu og varningnum var skilað.

Frá þessu greinir í tilkynningu frá lögreglunni.

Í kjölfar skýrslutöku var gefin út ákæra á hendur manninum og héraðsdómari gerði honum refsingu er nam eins mánaðar skilorðsbundnu fangelsi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert