Sportbátur í óskilum

Sportbáturinn sem enginn hefur vitjað
Sportbáturinn sem enginn hefur vitjað

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eiganda sportbáts sem fannst á sumarbústaðalandi skammt frá Reykjavík. Báturinn er á kerru en ekki er vitað hver eða hverjir komu bátnum fyrir á umræddum stað.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.

Lögregla leitar nú eiganda sportbátsins á myndinni
Lögregla leitar nú eiganda sportbátsins á myndinni
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert