Íslendingar þátttakendur í heimssýningunni í Sjanghai
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að Ísland taki þátt í heimssýningunni EXPO 2010 sem haldin verður í Sjanghai í Kína frá maí til október 2010. Þátttaka Íslands er samstarfsverkefni fyrirtækja og hins opinbera og hefur utanríkisráðuneytið umsjón með verkefninu. Kostnaður vegna sýningarhaldsins er um 620 milljónir króna
Þema sýningarinnar er borgarsamfélagið, undir einkunnarorðunum „Betri borg, betra líf". Markmiðið með þátttöku Íslands er að vekja athygli á íslenskri orku og orkunýtingu, mannauði og menningu. Jafnhliða verður leitast við að skapa íslenskum fyrirtækjum viðskiptatækifæri, samkvæmt tilkynningu.
Heimssýningin er haldin á fimm ára fresti með þátttöku flestra ríkja heims og að þessu sinni er gert ráð fyrir að um 400.000 manns sæki sýninguna daglega. Heimssýningin var síðast haldin í Aichi í Japan árið 2005. Þar voru Norðurlöndin með sameiginlega sýningu. Að þessu sinni munu Norðurlöndin eiga náið samstarf en hafa þó hvert sinn skála sem standa munu hlið við hlið á sýningarsvæðinu.
Ákveðið hefur verið að leigja 1.000 m² skála af skipuleggjendum, en þess má geta að sýningarrými hinna Norðurlandanna eru á bilinu 3.000 til 6.000 m².
Kostnaður ríkisins 450 milljónir króna
Heildarkostnaður er áætlaður um 620 m.kr. og er gert ráð fyrir að hlutdeild ríkisins fari ekki yfir 450 m.kr. Samningar við sex fyrirtæki liggja fyrir og vonast er til þess að fleiri aðilar komi að fjármögnun verkefnisins.
Gert er ráð fyrir að íslenskir listamenn taki þátt í verkefninu með margvíslegum hætti, auk þess sem þátttakan í heimssýningunni felur í sér gerð margvíslegs kynningarefnis um Ísland sem nýtt verður áfram að sýningu lokinni.
Verkefnið mun lúta framkvæmdastjórn undir forystu Péturs Ásgeirssonar, skrifstofustjóra í utanríkisráðuneytinu, skipaðri fulltrúum ráðuneytisins, Útflutningsráðs og Framkvæmdasýslu ríkisins. Framkvæmdastjórnin hefur samráðshóp sér til fulltingis sem í sitja fulltrúar stjórnvalda, fyrirtækja og hagsmunaaðila.
Hreini Pálssyni, sendiráðsritara í utanríkisráðuneytinu, hefur verið falið starf framkvæmdastjóra verkefnisins. Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Íslands í Peking, verður tengiliður íslenskra stjórnvalda gagnvart kínverskum skipuleggjendum.
Innlent »
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 31. október 2008, Innlent Óljóst með heimssýninguna
- Þriðjudagur, 16. desember 2008, Innlent Hundrað og fjörutíu milljónir í EXPO 2010
- Fimmtudagur, 8. október 2009, Innlent Ísland fær EXPO skálann afhentan
- Mánudagur, 17. ágúst 2009, Innlent Samstarf um þátttöku á EXPO 2010
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Þrjár tillögur komnar í lokaúrslit
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































