Fengu nýtt innbú á sólarhring

Hjónin Adam og Jolanta Ciesielska misstu allt sitt í brunanum …
Hjónin Adam og Jolanta Ciesielska misstu allt sitt í brunanum í Strandgötu í vikunni. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Ísfirðingar og nærsveitarmenn létu ekki á sér standa þegar efnt var til söfnunar vegna hjónanna Adams og Jolöntu Ciesielska sem misstu allt innbú sitt er hús þeirra brann í Hnífsdal í vikunni.

Óskað var eftir frjálsum framlögum auk húsgagna og annarra innanstokksmuna til að styrkja hjónin. Þau hafa nú fengið allt sem þau þurfa í innbú sitt og þakka fólki kærlega fyrir aðstoðina og hlýhug til þeirra.

Minna má á að fjársöfnun er þó enn í gangi í Landsbankanum og geta þeir sem vilja lagt þar inn frjáls framlög til hjálpar fjölskyldunni. Númerið er 0156-05-06480010.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert