Úrskurður um Vestfjarðaveg ógiltur
Séð ofan í Þorskafjörð. mynd/bb.is
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi úrskurð umhverfisráðherra frá því í janúar 2007 þar sem fallist var á svonefnda leið B í öðrum áfanga Vestfjarðavegar frá Bjarkarlundi til Eyrar í Reykhólahreppi. Nokkrir landeigendur á svæðinu, Náttúruverndarsamtök Íslands og Fuglaverndarfélag Íslands höfðuðu málið og kröfðust ógildingar.
Skipulagsstofnun lagðist árið 2006 gegn því, að Vestfjarðavegur yrði lagður samkvæmt tillögu B á leiðinni frá Bjarkalundi til Eyrar. Nýja veginum er ætlað að bæta samgöngur annars vegar innar Reykhólahrepps og hins vegar frá Hringvegi til og frá V-Barðastrandasýslu og norðanverða Vestfirði.
Jónína Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra, felldi hins vegar úrskurð Skipulagsstofnunar úr gildi og féllst á tillögu Vegagerðarinnar um að fara með veginn um Teigsskóg. Landeigendur og náttúruverndarfélög töldu að slík vegagerð myndi hafa í för með gríðarleg óafturkræf umhverfisspjöll í nær ósnortnu umhverfi og höfðuðu því mál til að fá úrskurð ráðherra ógildan.
Héraðsdómur tók undir þá málsástæðu, að brotið hafi verið gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga þar sem að í matsferlinu hafi ekki farið fram mat á líklegum umhverfisáhrifum þverunar Djúpafjarðar og Gufufjarðar. Óvissa ríki því um líkleg áhrif þverunar Djúpafjarðar og Gufufjarðar á gróður á töngum og í botni fjarðanna.
Segir dómurinn að þar sem fullnægjandi upplýsingar um áhrif þverunar fjarðanna á umhverfið hafi ekki legið fyrir þegar ráðherra kvað upp úrskurð sinn, hafi honum borið að láta rannsaka þau áhrif á fullnægjandi hátt. Þannig hefði verið lagður viðhlítandi grundvöllur að ákvörðuninni áður en hún var tekin. Þar sem á skorti að fyrrnefndar upplýsingar lægju fyrir við uppkvaðningu úrskurðar ráðherra sé um svo veigamikinn ágalla á honum að ræða, að óhjákvæmilegt sé að fella þann hluta úrskurðarins úr gildi.
Leið B, sem var valkostur Vegagerðarinnar, er rúmir 15 km á lengd og liggur frá
Þórisstöðum í Þorskafirði, út Þorskafjörð vestanverðan, um
Hallsteinsnes, þvert yfir utanverðan Djúpafjörð vestur á Grónes
(Gróunes) og þaðan þvert yfir utanverðan Gufufjörð. Vestan Gufufjarðar
liggi vegurinn frá Melanesi og vestur fyrir Kraká.
Bloggað um fréttina
-
Sævar Helgason Vegastæði um Teigsskóg fellt úr gildi -
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson Gleðifrétt um Teigsskóg -
Gunnlaugur B Ólafsson Að vanda til verka
Innlent »
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 22. október 2009, Innlent Vestfjarðavegur ekki um Teigsskóg
- Föstudagur, 14. mars 2008, Innlent Héraðsdómur taki afstöðu til vegarstæða í Hornafirði
- Mánudagur, 23. júní 2008, Innlent Framkvæmdaleyfi fyrir vegi gegnum Teigsskóg.
- Miðvikudagur, 10. desember 2008, Innlent Brúaröræfi eru þjóðlenda
- Þriðjudagur, 5. febrúar 2008, Innlent Ekki fallist á kröfu landeigenda í Hornafirði
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































