Keyrðu í gegnum girðingu

Erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt.
Erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt. mbl.is/Júlíus

Fimm voru fluttir á slysadeild í nótt eftir að bifreið þeirra ók í gegnum stálgirðingu sem skilur að umferðina í austur og vestur á Hringbraut. Einn þeirra var fastur í bílnum og þurfti að klippa hann út.

Slysið átti sér stað rúmlega 3:30 nálægt Snorrabraut en ekki er vitað hvað olli því. Ekki er vitað um líðan fólksins en svo virðist vera sem a.m.k. einn fimmenninganna sé á gjörgæsludeild LSH. Ekki hefur náðst í vakhafandi lækna.

Að sögn lögreglunnar í Reykjavík var talsverður erill í nótt. 13 gistu fangaklefa lögreglunnar og var tilkynnt um 5 innbrot og 7 ölvunarakstursbrot á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert