Slysum fækkar í umferðinni

mbl.is/Sverrir

Umferðaróhöppum þar sem slys hafa orðið á fólki hefur fækkað nokkuð á höfuðborgarsvæðinu eða um 15% síðastliðna sjö mánuði samanborið við sama tíma á síðasta ári, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu.

Ef skoðaðir eru helstu slysastaðir höfuðborgarsvæðisins síðastliðið eitt og hálft ár má sjá að flest hafa þau orðið á gatnamótum Suðurlandsbrautar/Kringlumýrarbrautar og Laugavegs eða fjórtán talsins. Tíu slys hafa á sama tíma átt sér stað á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Bústaðavegar austan Bústaðavegsbrúar.

Sjá nánari upplýsingar um hættulegustu staðina í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert